|
Velkomin á síðuna okkar!
Við erum bræðurnir Árni Magnús
og Hermann Þór.
Árni Magnús kom í heiminn á Skejby sjúkrahúsinu
í Árósum, þann 1. febrúar 2004, 3870 grömm og 54 sentimetrar.
Hermann Þór fæddist líka á Skejby sjúkrahúsinu, þann 15. apríl
2005, 4180 grömm og jafnlangur.
Fréttir
Myndir dagsins: Himmelbjerget2008-09-14 Við lögðum land undir fót í dag í rjómablíðu og sigruðum Himmelbjerget. Vantrúa geta skoðað sönnunargögnin á myndasíðunni.
Sumarið 2008 - Myndir 2008-09-05 Slatti af myndum frá liðnu sumri-sumari?! Sennilega komin tími á að huga að heimferð! Allavegana, nýjar myndir.
Myndir frá maí 2008-08-14 ...og ekki fleiri orð um það.
Afmælismyndir 2008-06-23 Betra seint en aldrei heyrði ég eitt sinn sagt og það á vel við nú, þegar myndir frá afmælisdeginum hans HÞ eru komnar inn. Veislurnar voru reyndar tvær eins og sjá má, og til að gera þetta enn ruglingslegra virðist tímaröðin vera í einhverju rugli. Ástæðan er sú að við fengum nýja myndavél og því er eitthvað ósamræmi á milli nafna á myndunum.
Myndir settar inn 2008-02-02 Myndir frá fyrstu strandferð ársins og úr afmælinu hans Árna Magnúsar settar inn í dag.
Lesa meira
|
|